Við viljum öll ná góðum árangri. Það er ástæðan fyrir því að ég bíð mig fram á lista Pírata í Reykjavík.
Ég tel mig geta náð góðum árangri í samvinnu við ykkur.
Hvað þarf til að ná góðum árangri?
- Skýra stefnu. Hvert viljum við komast?
- Gott skipulag. Hvernig komumst við þangað?
- Geta til að framkvæma og fylgja eftir leiðum sem valdar eru.
Ef við náum góðri kosningu í haust þá verðum við í lykilaðstöðu til að semja við aðra flokka um stefnu og leiðir.
Ég vil benda á mig sem valkost.
- Ég hef náð góðum árangri,
- ég þekki vel verkefnstjórnun sem eykur líkurnar á góðum árangri og
- ég er snjall samningamaður, þekki samningatækni og hef náð mörgum góðum samningum í gegnum tíðina.
Ég er ágætis kostur ef við viljum ná góðum árangri.
EN ÉG ER SANNARLEGA EKKI EINI GÓÐI KOSTURINN !