Hver er sá?

  • Hver er sá sem gaf út Sunnudagsblaðið með félögum sínum aðeins 12 ára gamall.  Notaði ritvél pabba síns og kalkipappír til að fjölga eintökum?
  • Hver er sá sem var gerður að bekkjarformanni öll árin hans í Álftamýraskóla og hugleiddi aldrei af hverju?
  • Hver er sá sem hóf að forrita 14 ára gamall á Commadore 64 og stuttu síðar á Sinclair Spectrum?
  • Hver er sá sem var kærulaus, spilaði tölvuleiki, las eitthvað allt annað en skólabækur og mætti illa í MH?
  • Hver er sá sem var á Eðlisfræðibraut og elskaði gríska heimspeki?
  • Hver er sá sem valdi tölvunarfræði sem háskólagrein og elskar að forrita recursive kóða?
  • Hver er sá sem valdi „kennslukerfi fyrir fötluð börn“ sem lokaverkefni í tölvunarfræði?
  • Hver er sá sem hætti í hálaunuðu starfi í gróðavænlegum banka þrátt fyrir áframhaldandi gilliboð og valdi sér að vinna í háskóla?
  • Hver er sá sem stýrði smíði á skilvirku kennslukerfi og sá til þess að 12 framhaldsskólar gátu nýtt sér það nemendum sínum til framdráttar?
  • Hver er sá sem elskar að vinna fyrir samfélagið í stað þess að vinna hjá ríkum einkafyrirtækjum?
  • Hver er sá sem vann á nóttunni og 70 tíma á viku við að rafvæða feril tómstundastyrks sem flæddi í gegnum þrjár ólíkar lausnir?
  • Hver er sá sem lagði mikið á sig til að gera bókhald sveitarfélags aðgengilegt  á vefnum og í kjölfarið gerði allt sem hann gat til að aðrir gætu einnig opnað?
  • Hver er sá sem nýlega hannaði og stýrði smíði lausnar sem getur nýst öllum heiminum, aukið framlegð, minnkað sóun, lækkað kolefnisspor og aukið jöfnuð?

Verið viss um það,  sá er Pírati

Ingimar Þór Friðriksson
8. sæti á lista Pírata í Reykjavík suður
Alþingiskostningar 2021